21.11.26 - 12:38
Brynjar Ingi Erluson
Upphæðin á bak við komu Pochettino til Man Utd opinberuð

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester United hefur opinberað hversu mikið félagið þurfti að greiða til að fá argentínska þjálfarann Mauricio Pochettino til sín.
Pochettino var ráðinn í stað Michael Carrick, sem var látinn taka pokann sinn eftir afar slakt gengi United.
Argentínumaðurinn var samningsbundinn bandaríska fótboltasambandinu, en í samningi hans var riftunarákvæði sem United ákvað að nýta sér til að fá hann til félagsins.
Í bráðabirgðauppgjöri United kemur fram að félagið greiði rúmar 7,5 milljónir punda fyrir að losa Pochettino undan samningi sínum, eða nánar tiltekið 7.584.000 pund.
Pochettino skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning við bandaríska sambandið í ágúst, en í honum var ákvæði sem gerði honum kleift að losna undan samningnum.
Hann stýrir United í fyrsta sinn á morgun þegar rauðu djöflarnir heimsækja erkifjendur sína í Liverpool á Anfield.