Fotbolti.net
21.12.17 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Celtic fær varnarmann frá RB Leipzig (Staðfest)

Celtic fær varnarmann frá RB Leipzig (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýski varnarmaðurinn Marvin Compper hefur samið við skosku meistaranna í Celtic. Hann mun ganga í raðir félagsins þegar nýtt ár gengur í garð þann 1. janúar.

Compper kemur til Celtic frá RB Leipzig. Hann kom til Skotlands á þriðjudag og skrifaði í kjölfarið undir tveggja- og hálfs árs samning við Celtic.

Hann var kynntur til leiks hjá félaginu í gær.

Hinn 32 ára gamli Compper hefur spilað með Borussia Monchengladbach, Hoffenheim og Fiorentina en hann hefur verið í Leipzig undanfarin ár.
„Þegar ég heyrði af áhuga Celtic varð ég strax mjög spenntur að koma hingað,\" sagði Compper, sem á einn landsleik fyrir Þýskaland, við Celtic TV.

Celtic tapaði á dögunum sínum fyrsta keppnisleik í meira en ár, eftir að hafa farið í gegnum 69 leiki án taps!

Sjá einnig:
Celtic tókst ekki að fara í gegnum 70 leiki án taps
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.