Fotbolti.net
21.12.17 - 13:44
Elvar Geir Magnússon

Eva Ýr gengin í raðir ÍR (Staðfest)

Eva Ýr gengin í raðir ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Eva Ýr Helgadóttir hefur gengið í raðir ÍR frá Fylki.

Eva lék sem lánsmaður hjá ÍR í sumar en hefur nú gengið til liðs við félagið og mun á næstunni undirrita tveggja ára samning við Breiðholtsliðið.
„Eva stundar nám í Bandaríkjunum þennan veturinn en er í löngu jólaleyfi og mun ná að taka þátt í Reykjavíkurmótinu að hluta, þ.á.m. í fyrsta leik stelpnanna í því móti, gegn sínum gömlu félögum í Fylki,\" segir á Facebook svæði knattspyrnudeildar ÍR.

„Við bjóðum Evu hjartanlega velkomna í ÍR og hlökkum mikið til að sjá til hennar í treyjunni í sumar!\"

Eva er 21 árs markvörður en hún lék ellefu leiki með ÍR síðasta sumar. Liðið hafnaði í 6. sæti 1. deildar kvenna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.