Fotbolti.net
21.12.17 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Wagner til Bayern (Staðfest)

Sandro Wagner.

Sandro Wagner.

Canon

Mynd: Getty Images

Bayern Munchen hefur keypt framherjann Sandro Wagner frá Hoffenheim. Wagner skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning hjá Bayern í dag.

Félagaskiptin ganga formlega í gegn þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Hinn þrítugi Wagner ólst upp hjá Bayern Munchen en hann náði ekki að brjóta sér leið inn í aðalliðið í byrjun meistaraflokksferilsins.

Wagner hefur meðal annars leikið með Werder Bremen og Hertha Berlin á ferlinum en hann gekk til liðs við Hoffenheim í fyrra.

Góð frammistaða þar tryggði Wagner sæti í þýska landsliðinu og Bayern hefur nú keypt hann í sínar raðir.

BREAKING: #FCBayern to sign Germany international forward Sandro #Wagner in January until 2020 ✍️ #MiaSanMia pic.twitter.com/eBtDHoQnoq

— FC Bayern English (@FCBayernEN) December 21, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.