Fotbolti.net
22.01.22 - 20:10
Ívan Guðjón Baldursson

Walker-Peters maður leiksins gegn City

Walker-Peters maður leiksins gegn City
Canon

Mynd: EPA

Hægri bakvörðurinn Kyle Walker-Peters kom Southampton yfir á sjöundu mínútu og var valinn sem besti leikmaður vallarins í 1-1 jafntefli gegn Englandsmeisturum Manchester City.
Man City virtust óstöðvandi fyrir leik dagsins enda búnir að vinna tólf úrvalsdeildarleiki í röð fyrir daginn.

Walker-Peters gerði laglegt mark og fékk 8 í einkunn hjá Sky Sports, rétt eins og liðsfélagar sínir James Ward-Prowse, Mohammed Salisu og Armando Broja.

Aymeric Laporte er eini leikmaður City sem fékk 8. Raheem Sterling var lélegastur á vellinum og fékk 5 í einkunn enda klúðraði hann nokkrum góðum færum.

Man City er með tólf stiga forystu á toppi úrvalsdeildarinnar sem stendur. Southampton siglir lygnan sjó í neðri hlutanum.

Southampton: Forster (7), Bednarek (7), Perraud (7), Salisu (8), Walker-Peters (8), Romeu (7), Ward-Prowse (8), S.Armstrong (7), Redmond (7), Broja (8), Adams (7)
Varamenn: Lyanco (7), Diallo (7), Elyounoussi (7)

Man City: Ederson (7), Walker (7), Laporte (8), Dias (7), Cancelo (7), Rodri (7), De Bruyne (7), Silva (7), Grealish (6), Foden (6), Sterling (5)
Varamaður: Jesus (7)
Walker-Peters maður leiksins gegn City
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.