Timo Werner var á skotskónum í kvöld þegar RB Leipzig heimsótti Schalke í þýsku úrvalsdeildinni.
Werner hefur síðustu vikur verið mikið orðaður við Liverpool og hann ræddi þennan orðróm í viðtali eftir leik. Hann byrjaði á að hrósa Jurgen Klopp.
„Hann er einn besti knattspyrnustjóri í heimi og svo er hann auðvitað þýskur," sagði Werner í samtali við Sky.
„Það er margt sem segir mér að ég myndi kannski passa ágætlega inn í Liverpool liðið. En það er ekki efst í huga mér núna því það er mikið undir hjá okkur í Leipzig," sagði Werner.
Athugasemdir