Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Búinn að velja landsliðshóp fyrir þróunarmót U16
U16 í september í fyrra.
U16 í september í fyrra.
Mynd: KSÍ
Mynd: Fylkir
Lúðvík Gunnarsson þjálfari U16 ára landsliðs karla er búinn að velja leikmannahóp sem tekur þátt í þróunarmóti UEFA í Færeyjum næstu vikuna.

Mótið byrjar á föstudaginn og lýkur viku síðar og mun hver þjóð keppa tvo leiki.

Auk Íslandi og Færeyja munu U16 landslið Eistlands og Bosníu taka þátt í mótinu.

Breiðablik á flesta fulltrúa í hópnum eða fjóra talsins og eru þrír úr röðum HK. Uppeldisstarfsemin í Kópavogi virðist vera ansi öflug þar sem ekkert annað félagslið er með svo marga leikmenn í hópnum.

ÍA og Þróttur eiga tvo fulltrúa hvort og skipta önnur félagslið hinum leikmönnunum á milli sín. Þá er einn táningur í hópnum að sinni sem leikur með Hammarby í Svíþjóð.

Landsliðshópurinn
Arnar Bjarki Gunnleifsson - Breiðablik
Darri Kristmundsson - Breiðablik
Elmar Ágúst Halldórsson - Breiðablik
Óðinn Sturla Þórðarson - Breiðablik
Róbert Hugi Sævarsson - FH
Magnús Daði Ottesen - Fylkir
Mikael Máni Þorfinnsson - Grindavík
Kristján Tómas Björnsson - Grótta
Emil Eldar Takao Árnason - Hammarby IF
Bjarki Örn Brynjarsson - HK
Emil Máni Breiðdal Kjartansson - HK
Marten Leon Jóhannsson - HK
Aron Kristinn Zumbergs - ÍA
Styrmir Gíslason - ÍA
Emil Gautason - ÍBV
Sigurður Nói Jóhannsson - KA
Bjarki Hrafn Garðarsson - Stjarnan
Smári Signar Viðarsson - Þór
Fjölnir Freysson - Þróttur R.
Léo Hrafn Elmarsson - Þróttur R.
Athugasemdir
banner