Fotbolti.net
22.04.13 - 09:43
Magnús Már Einarsson

Liverpool sektar Suarez - Upphæðin fer í Hillsborough sjóðinn

Liverpool sektar Suarez - Upphæðin fer í Hillsborough sjóðinn
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur sektað Luis Suarez eftir hegðun hans í jafnteflinu gegn Chelsea í gær.

Suarez beit Branislav Ivanovic varnarmann Chelsea eins og frægt er orðið.
Úrúgvæinn hefur nú verið sektaður en hann hefur ákveðið að láta upphæðina renna í styrktarsjóð fjölskyldna fórnarlamba Hillsborough slyssins.

,,Eftir óásættanlega hegðun mína í gær þá hefur félgið sektað mig í dag,\" sagði Suarez á Twitter í dag.

,,Ég hef beðið félagið að láta peninginn renna í styrktarstjóð fjölskyldna þeirra sem lentu í Hillsborough slysinu í staðinn fyrir óþægindin sem stuðningsmenn Liverpool og Ivanovic hafa orðið fyrir.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.