Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. apríl 2021 18:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikur KR og ÍA flautaður af á 75. mínútu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR 3 - 0 ÍA

KR vann öruggan sigur á ÍA í æfingaleik sem fram fór í dag. Kristján Flóki Finnbogason og Pálmi Rafn Pálmason voru á meðal markaskorara KR í leiknum en ekki er vitað hver gerði þriðja markið.

Þetta eru gamlir erkifjendur og var mönnum heitt í hamsi á meðan leiknum í dag stóð.

Á 75. mínútu var leikurinn flautaður út af erjum á milli leikmanna. Mönnum var heitt í hamsi og Þórður Már Gylfason ákvað að flauta leikinn bara af.

Bæði þessi lið eru í Pepsi Max-deildinni sem byrjar að rúlla eftir rúma viku.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner