Fotbolti.net
22.05.19 - 16:18
Elvar Geir Magnússon

Rudi Garcia hættir sem þjálfari Marseille

Rudi Garcia.

Rudi Garcia.

Canon

Mynd: Getty Images

Rudi Garcia mun láta af störfum sem þjálfari franska liðsins Marseille á föstudaginn, eftir leik liðsins gegn Montpellier í lokaumferðinni.

Garcia, sem er fyrrum stjóri Roma, hefur haldið um stjórnartaumana hjá Marseille frá 2016.

Á fréttamannafundi í dag sagði hann að þetta tímabil hefði verið vonbrigði en Marseille situr í sjötta sæti.
Spennandi verður að sjá hver mun taka við Marseille en Gabriel Heinze, Claude Puel, Rafael Benitez, André Villas-Boas, Leonardo Jardim, Laurent Blanc og José Mourinho hafa allir verið orðaðir við starfið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.