Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mið 22. júlí 2020 22:40
Anton Freyr Jónsson
Rúnar Kristins: Ósáttur með að vinna ekki leikinn
Rúnar Kristinsson þjálfari KR
Rúnar Kristinsson þjálfari KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var ósáttur eftir 2-2 jafntefli við Fjölnismenn á Meistaravöllum.

Lestu um leikinn: KR 2 -  2 Fjölnir

„Vonbrigði að hafa ekki náð að klára leikinn og unnið hann eftir að hafa komist yfir, við fáum mark á okkur strax eftir það. Áttum fullt af færum til að klára leikinn og fullt af góðum opnunum sem við nýttum okkur ekki."

„Ég er fyrst og fremst ósáttur með að vinna ekki leikinn en við tökum stigið þótt við séum ekki sáttir með það en það er betra en ekkert."

Stefán Árni Geirsson og Kristinn Jónsson eru báðir frá vegna meiðsla og er óljóst hvenar þeir snúa til baka og Arnór Sveinn bættist á meiðslalista KR-inga eftir að hafa fengið þungt högg á lærið í lok leiks.

„Þeir eru báðir frá í einhvern tíma og það er algjörlega óvíst hversu lengi."

KR fer norður á Akureyri í næstu umferð og mætir þar KA mönnum. Hvernig lýst Rúnari á það verkefni?

„Það verður mjög erfitt verkefni, erfitt að spila fyrir norðan. Þeir fengu nýjan þjálfara sem er að gera frábæra hluti með liðið. Arnar er góður vinur minn þannig það verður gaman að fara norður en á sama skapi mjög erfitt að eiga við þá, þeir eru gríðarlega vel skipulagðir og eru búnir að spila tvo flotta leiki eftir að Arnar tók við."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner