Fotbolti.net
22.07.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ochoa: Gat ekki ímyndað mér hversu langt draumur gæti leitt mig

Ochoa: Gat ekki ímyndað mér hversu langt draumur gæti leitt mig
Canon

Mynd: EPA

Mexíkóinn Guillermo Ochoa hefur lagt hanskana á hilluna en hann spilaði sinn síðasta leik á ferlinum á HM.
Ochoa hættur í fótbolta (Staðfest)
TENGT EFNI

Ochoa hættur í fótbolta (Staðfest)

Ochoa er 41 árs gamall en hann spilaði sinn síðasta leik í 3. umferð riðlakeppninnar þegar hann kom inn á undir lokin í 3-0 sigri á Tékklandi.

Hann er ekki þekktur fyrir félagsliðaferilinn en hann spilaði 153 landsleiki frá 2005-2026. Hann fór sex sinnum á HM en spilaði á fjórum mótum. Aðeins Cristiano Ronaldo og Lionel Messi hafa spilað á fleiri mótum eða sex talsins.

Hann skrifaði kveðju til mexíkósku þjóðarinnar á samfélagsmiðlum.

„Ég gat ekki ímyndað mér hversu langt draumur gæti leitt mig. Í dag get ég aðeins litið til baka með stolti og sagt: Takk fyrir. Þakkir til fjölskyldu minnar. Þakkir til liðsfélaga minna. Þakkir til allra aðdáenda sem voru til staðar fyrir mig á hverju fótmáli. Ég tek með mér kærleika milljóna og hugarróinn sem fylgir því að hafa gefið allt fyrir Mexíkó. Það sem við upplifðum er eitthvað sem enginn getur tekið frá okkur. Frá mínu hjarta rótum þakka ég ykkur kærlega fyrir.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.