22.08.12 - 10:12
Magnús Már Einarsson
Grétar Rafn til Kayserispor (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grétar Rafn Steinsson skrifaði rétt í þessu undir tveggja ára samning við tyrkneska félagið Kayserispor en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.
Grétar fór til Tyrklands í fyrradag að skoða aðstæður og fara í viðræður við Kayserispor og nú hefur hann samið við félagið.
Kayserispor endaði í ellefta sæti í tyrknesku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en liðið tapaði 1-0 gegn Buraspor í fyrstu umferðinni á nýju tímabili um síðustu helgi.
Þjálfari liðsins er Georgíumaðurinn Shota Arveladze sem spilaði með Grétari hjá AZ Alkmaar frá 2006-2007.
Grétar hefur leikið með Bolton undanfarin ár en samningur hans þar rann út fyrr í sumar. Grétar er þrítugur en hann kom til Bolton frá AZ Alkmaar í janúar árið 2008.
Grétar fór upphaflega í atvinnumennsku erlendis árið 2004 þegar hann gekk í raðir Young Boys í Sviss frá ÍA.