22.08.12 - 10:45
Elvar Geir Magnússon
Cassano til Inter - Pazzini til Milan (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Búið er að ganga frá félagaskiptum Antonio Cassano frá AC Milan til Inter. Gerður var skiptidíll og fær AC Milan í staðinn Giampaolo Pazzini.
Ítalski landsliðsmaðurinn Cassano er þrítugur sóknarmaður sem hefur skrifað undir samning til júní 2014.
Ítalski landsliðsmaðurinn Cassano er þrítugur sóknarmaður sem hefur skrifað undir samning til júní 2014.
Pazzini er 28 ára sóknarmaður sem leikið hefur 24 landsleiki fyrir Ítalíu. Hann kom til Inter frá Sampdoria 2011. Hann og Cassano voru á sínum tíma samherjar hjá Sampdoria.
Inter heimsækir Pescara og AC Milan fær Sampdoria í heimsókn þegar fyrsta umferð ítölsku A-deildarinnar fer fram um komandi helgi.
Inter heimsækir Pescara og AC Milan fær Sampdoria í heimsókn þegar fyrsta umferð ítölsku A-deildarinnar fer fram um komandi helgi.
