22.08.12 - 22:29
Brynjar Ingi Erluson
Juventus fær þrjá leikmenn til félagsins (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítölsku meistararnir í Juventus hafa fest kaup á tveimur leikmönnum, þeim Alberto Masi og James Troisi.
Masi, sem er 19 ára gamall, kemur frá Pro Vercelli, en Juventus keypti helmingshlut í honum fyrr í sumar og kláraði því kaupin í dag.
Hann er efnilegur varnamaður, en honum tókst að heilla Antonio Conte, þjálfara liðsins ú sumar.
Troisi er 24 ára gamall Ástrali, en hann hefur verið keyptur til félagsins og skrifaði hann undir fjögurra ára samning. Hann verður strax lánaður til Atalanta og verður í að minnsta kosti eina leiktíð þar.
Juventus keypti þá einnig helmingshlut í Manolo Gabbiadini, en lánaði hann strax til Bologna.

Heimild: Sky