Willum kom af bekknum
Astana (Kasakstan) 3 - 0 BATE (Hvíta-Rússland)
1-0 Marin Tomasov ('23 )
2-0 Yuri Logvinenko ('44 )
3-0 Rúnar Már Sigurjónsson ('52 , víti)
1-0 Marin Tomasov ('23 )
2-0 Yuri Logvinenko ('44 )
3-0 Rúnar Már Sigurjónsson ('52 , víti)
Landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson og félagar í Astana unnu öruggan sigur gegn BATE í fyrri viðureign liðanna í umspili fyrir Evrópudeildina.
Astana er því í góðri stöðu til að tryggja sér sæti í riðlakeppninni en seinni leikurinn verður í Hvíta-Rússlandi eftir viku.
Rúnar hefur staðið sig vel í lyklilhutverki hjá Astana en hann skoraði eitt af mörkunum í dag, það kom af vítapunktinum. Þá lagði hann upp fyrsta mark leiksins.
Rúnar lék allan leikinn fyrir Astana en Willum Þór Willumsson kom inn af varamannabekknum hjá BATE eftir klukkutíma leik.
Athugasemdir