Fotbolti.net
22.09.12 - 21:00
Sebastían Sævarsson Meyer

Artur Boruc til Southampton (Staðfest)

Artur Boruc er mættur í enska boltann.

Artur Boruc er mættur í enska boltann.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hefur nælt sér í pólska markvörðinn Artur Boruc á frjálsri sölu sem yfirgaf Fiorentina í sumar.

Þessi 32 ára markvörður skrifaði undir samning hjá Southampton sem gildir út leiktíðina og mun hann berjast við Kelvin Davies og Paulo Gazzaniga um markvarðarstöðuna í liðinu.
Boruc var aðalmarkvörður Celtic í fimm ár áður en hann gekk til liðs við Fiorentina árið 2010. Þar spilaði hann 62 leiki þar til samningur hans rann út í sumar.

Boruc, sem á 46 leiki að baki með pólska landsliðinu, er í skýjunum að vera kominn í ensku úrvalsdeildina.

,,Ég hlakka til að spila í bestu deild heims með Southampton. Ég saknaði fótboltans svo ég er mjög ánægður að vera kominn hingað og loksins fundið félagið sem ég var að leita að,\" sagði Boruc.

,,Draumar mínir eru að rætast. Ég hef talað um þetta í langan tíma og loksins er ég kominn í ensku úrvalsdeildina.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.