Valur varð Íslandsmeistari í gær. Liðið vann Keflavík í lokaumferð Pepsi Max-deild kvenna og endaði liðið með 50 stig; 16 sigra, tvö jafntefli og engin töp.
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir kom í Val fyrir tímabilið frá Stjörnunni og átti hún stóran þátt í þessum titli. Hún var samningslaus eftir síðasta tímabil eftir að hafa leikið með Stjörnunni frá 2005.
Hún hefur fengið margar hamingjuóskir á samfélagsmiðlum og til að mynda sendi markvörðurinn Berglind Hrund Jónasdóttir henni kveðju. Í kveðjunni segir hún að Stjarnan hafi gefið skít í Ásgerði.
„Ein sú vanmetnasta á landinu, Adda FOKKING Baldurs. Stjarnan gefur skít í eitt mesta Idol sem hefur verið í þessu félagi, Drottningin hlustar ekki á kjaftæði, Fer í Val og BOMM TITILL!! TIL HAMINGJU ADDA og til hamingju Valur," skrifar Berglind.
Þess má geta að Berglind var í Stjörnunni á tímabilinu sem var að líða og kom hún við sögu í tveimur leikjum í Pepsi Max-deildinni.
Ein sú vanmetnasta á landinu, Adda FOKKING Baldurs. Stjarnan gefur skít í eitt mesta Idol sem hefur verið í þessu félagi,Drottningin hlustar ekki á kjaftæði, Fer í Val og BOMM TITILL!!
— Berglind Hrund Jónas (@BeGGaNN) September 21, 2019
TIL HAMINGJU ADDA og til hamingju Valur
Adda 🏆👑⬇️
Íslandsmeistari - 5x
Bikarmeistari-3x pic.twitter.com/U3na5YqUqE
Athugasemdir