Fotbolti.net
22.10.12 - 13:11
Magnús Már Einarsson

Andri Freyr Björnsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Andri Freyr Björnsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Vinstri bakvörðurinn Andri Freyr Björnsson hefur gengið til liðs við BÍ/Bolungarvík.

Andri Freyr skrifaði undir tveggja ára samning við Vestfirðinga í dag.
Andri Freyr hætti hjá Selfyssingum í ágúst til að fara til Danmerkur í nám en hann er nú kominn aftur heim.

Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur leikið með meistaraflokki Selfyssinga frá því árið 2004.

Ísumar spilaði hann sjö leiki í Pepsi-deildinni og tvo í Borgunarbikarnum en samtals hefur Andri Freyr skorað sjö mörk í 97 deildar og bikarleikjum á ferlinum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.