22.10.12 - 13:03
Elvar Geir Magnússon
Del Neri tekur við Genoa (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Luigi Del Neri er nýr þjálfari Genoa en félagið rak þjálfara sinn Gigi De Canio eftir að liðið missti niður tveggja marka forystu gegn Roma í ítölsku A-deildinni í gær.
Genoa komst í 2-0 eftir 15 mínútna leik en lagði svo árar í bát og Roma vann 4-2.
Genoa komst í 2-0 eftir 15 mínútna leik en lagði svo árar í bát og Roma vann 4-2.
Enrico Preziosi, forseti Genoa, ákvað að gefa De Canio stígvélið.
Del Neri tekur við en hann hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Juventus sumarið 2011 og Antonio Conte tók við.
Genoa er í níunda sæti ítölsku deildarinnar.
Del Neri tekur við en hann hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Juventus sumarið 2011 og Antonio Conte tók við.
Genoa er í níunda sæti ítölsku deildarinnar.
