Fotbolti.net
22.10.12 - 13:53
Magnús Már Einarsson

Ingimundur Níels í FH (Staðfest)

Ingimundur Níels í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

FH hefur fengið kantmanninn Ingimund Níels Óskarsson í sínar raðir frá Fylki en þetta kemur fram á fhingar.net.

Ingimundur Níels skrifaði undir tveggja ára samning við FH en samningur hans við Fylki rennur út um mánaðarmótin.
Ingimundur Níels er uppalinn hjá Fjölni en hann hefur einnig leikið með KR hér á landi.

Í sumar skoraði Ingimundur níu mörk í Pepsi-deildinni en samtals hefur hann skorað 35 mörk í 137 leikjum hér á landi.

Ingimundur er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Íslandsmeistara FH í haust en Daði Lárusson kom til félagsins frá Haukum á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.