„Ég er heppinn fyrir hönd hópsins. Við vorum að leyfa öðrum leikmönnum að spila í kvöld. Það hefur verið mikið álag á leikmönnum. Ég er ekki vanur að gera það í fyrsta leik riðilsins en ég treysti strákunum og það var gott," sagði Jose Mourinho, stjóri Tottenham, eftir öruggan 3-0 sigur á LASK í Evrópudeildinni.
„Við hefðum getað skorað fleiri mörk en þetta snýst bara um þrjú stig. Ef við hefðum haft stuðningsmenn þá hefðum við skorað fleiri. Þeir koma með aukna orku."
Mourinho vorkennir þeim sem þurfa að sitja á bekknum í liði Tottenham.
„Ég finn til með varamönnunum - allir vilja spila."
„Á síðustu leiktíð vorum við í vandræðum fram á við þegar menn voru fjarverandi. Ég horfi á liðið mitt núna og ég hef úr svo mörgum valmöguleikum að velja," sagði Mourinho að lokum.
Athugasemdir