Enski boltinn heldur áfram að rúlla um helgina. Níunda umferðin hefst í kvöld klukkan 19:00 með leik Arsenal gegn Aston Villa. Fantasy spilarar hafa til klukkan 17:30 í dag (föstudag) til að gera breytingar á liðum sínum.
Ásamt veglegum vinningum í lok tímabils mun stigahæsti þátttakandi hvers mánaðar fá 40.000 kr gjafabréf hverju sinni frá Dominos. Aldrei er því of seint að skrá sig til leiks.
Til að skrá sig í fantasy deild Dominos þarf að nota kóðann zfezga
Smelltu hér til að skrá þig til leiks.
Hér að neðan má nálgast hlaðvörpin Enski boltinn og Fantabrögð.
Athugasemdir