Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 22. nóvember 2021 22:02
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Þægilegur sigur Rayo í nýliðaslag
Oscar Trejo fagnar þriðja marki Vallecano
Oscar Trejo fagnar þriðja marki Vallecano
Mynd: EPA
Rayo Vallecano 3 - 1 Mallorca
1-0 Sergi Guardiola ('16 )
2-0 Alvaro Garcia ('20 )
3-0 Oscar Trejo ('63 , víti)
3-1 Abdon Prats ('89 )

Rayo Vallecano vann auðveldan 3-1 sigur á Real Mallorca í 14. umferð spænsku deildarinnar í kvöld. Nýliðarnir hafa farið vel af stað og sitja í 6. sæti deildarinnar.

Sergi Guardiola kom Vallecano á bragðið á 16. mínútu leiksins áður en Alvaro Garcia gerði annað markið fjórum mínútum síðar.

Þriðja markið kom á 63. mínútu er Martin Valjent braut á Guardiola inn í teig. Argentínski framherjinn Oscar Trejo steig á punktinn og skoraði.

Abdon Prats klóraði í bakkann fyrir Mallorca undir lokin. Lokatölur 3-1 fyrir Vallecano sem er í 6. sæti með 23 stig á meðan Mallorca er í 13. sæti með 15 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner