22.12.17 - 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Graeme Murty stýrir Rangers út tímabilið (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Graeme Murty mun stýra Rangers út tímabilið eftir að Pedro Caixinha var látinn fara í lok október.
Rangers er í þriðja sæti skosku deildarinnar en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Murty tekur við félaginu til skamms tíma. Hann tók fyrst við þegar Mark Warburton hætti 10. febrúar. Murty stýrði liðinu í mánuð, þar til Caixinha var ráðinn.

„Það er mikill heiður að hafa verið beðinn um að stýra félaginu út tímabilið. Ég mun halda áfram að gefa mig allan í verkefnið,\" sagði Murty við vefsíðu félagsins.
„Það er nóg eftir af tímabilinu og við megum ekki bregðast stuðningsmönnum, þeir hafa verið ótrúlegir og stutt við bakið á okkur gegnum erfiða tíma.\"
Rangers reyndi að fá Derek McInnes til sín frá Aberdeen. McInnes kom öllum í opna skjöldu þegar hann hafnaði tilboði Rangers til að halda áfram með Aberdeen.
Murty er 43 ára gamall og á fjóra landsleiki að baki fyrir Skota.