22.12.17 - 19:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Mario Gomez genginn til liðs við Stuttgart (Staðfest)

Gomez hefur yfirgefið Wolfsburg

Mynd: Getty Images

Gomez hefur yfirgefið Wolfsburg

Mynd: Getty Images
Þýski framherjinn Mario Gomez er genginn til liðs við Stuttgart frá Wolfsburg.
Með félagaskiptunum vonast Gomez að hann verði valinn í þýska landsliðið fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi næsta sumar.
Gomez hefur leikið 71 landsleik fyrir Þýskaland og skorað í þeim 31 mark.
Hann hefur hins vegar aðeins leikið í einum af síðustu leikjum Þjóðverja og var hann ekki valinn í lokahóp Þýskalands fyrir heimsmeistaramótið í Brasilíu árið 2014. Þýskaland fór þá alla leið og unnu heimsmeistaratitilinn.
Gomez hóf ferill sinn hjá Stuttgart en yfirgaf félagið árið 2009.
<i>„Ég er spenntur yfir því að vera kominn heim aftur, þar sem þetta allt byrjaði. Síðustu daga hef ég fundið fyrir því hvað mig langaði að koma aftur til Stuttgart.\"</> sagði Gomez.
<i>„Þetta er félagið sem ég ólst upp í og ég átti klikkaðan tíma hérna þegar við unnum titilinn óvænt árið 2007.\"</i>