22.12.17 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Terim tekinn við Galatasaray í fjórða sinn (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fatih Terim hefur ákveðið að taka við stjórn á Galatasaray í fjórða sinn á ferlinum.
Terim lék meira en 400 leiki á ellefu árum hjá Galatasaray, frá 1974 til 1985. Þá lék hann 51 landsleik fyrir Tyrkland.

Terim fór í þjálfun eftir leikmannaferilinn og tók við landsliðinu árið 1993. Á þjálfaraferlinum hefur hann stýrt Galatasaray þrisvar sinnum og Tyrklandi þrisvar.
Terim sagði af sér sem þjálfari tyrkneska landsliðins eftir rifrildi við veitingastaðareiganda í sumar. Galatasaray rak Igor Tudor úr stjórastöðunni á mánudaginn eftir þriðja tapið í fjórum leikjum.
Terim hefur ekki stýrt félagsliði síðan hann var við stjórnvölinn hjá Galatasaray frá 2011 til 2013.
Þjálfarinn, sem er 64 ára gamall, hefur gert frábæra hluti fyrir Galatasaray og vann deildina til dæmis fjögur ár í röð frá 1997 til 2000.