Fotbolti.net
23.01.18 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Chris Powell tekur við Southend (Staðfest)

Chris Powell.

Chris Powell.

Canon

Mynd: Getty Images

Chris Powell hefur verið ráðinn stjóri hjá Southend í ensku C-deildinni.

Powell spilaði tæplega 300 leiki með Charlton á ferlinum en hann var síðan stjóri liðsins frá 2011 til 2014.

Hinn 48 ára gamli Powell hefur einnig stýrt Huddersfield á ferlinum og verið aðstoðarstjóri hjá Derby.
Hann tekur við Southend af Phil Brown sem var sparkað í síðustu viku eftir sjö töp í síðustu átta leikjum.

Southend er í 20. sæti í ensku C-deildinni, einungis stigi frá fallsvæðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.