Fotbolti.net
23.01.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Margrét Björg Ástvaldsdóttir í Fylki (Staðfest)

Margrét Björg Ástvaldsdóttir í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Margrét Björg Ástvaldsdóttir er búin að skrifa undir tveggja ára samning við Fylki eftir þrjú ár hjá Haukum.

Margrét Björg er fædd 1994 og byrjaði að spila fyrir meistaraflokk Fylkis aðeins 16 ára gömul. Hún á fjóra U19 landsleiki að baki auk 95 meistaraflokksleikja.
Margrét hefur byrjað nýtt ár afar vel og skoraði hún þrennu í 4-1 sigri gegn Fjölni í Reykjavíkurmótinu um helgina.

Þá er Þórdís Edda Hjartardóttir búin að framlengja út tímabilið 2019. Þórdís spilaði sex leiki á milli stanganna síðasta sumar og á alls 81 meistaraflokksleik að baki með ÍR, Breiðablik, HK/Víkingi og Álftanesi auk Fylkis.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.