Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 23. janúar 2022 10:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Eldur kviknaði á Molineux í nótt
Molineux heimavöllur Wolves.
Molineux heimavöllur Wolves.
Mynd: Getty Images
Slökkviliðið var fljótt að bregðast við þegar það fékk tilkynningu um bruna á Molineux heimavelli enska úrvalsdeildarfélagsins Wolves í nótt.

Það kviknaði eldur í eldhúsinu við barinn um kl 2 í nótt, 20 slökkviliðsmenn voru mættir tveimur mínútum eftir að tilkynning barst og voru búnir að slökkva eldinn um kl 3:40 í nótt. Þeir yfirgáfu svæðið um kl 6:45 í morgun.

Það var enginn á staðnum þegar eldurinn kom upp en það eru einhverjar skemmdir á barnum.

Wolves á næst leik þann 5. febrúar á Molineux þegar liðið fær Norwich í heimsókn í FA Bikarnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner