Það voru tveir leikir í Fótbolta.net mótinu á þessum sunnudegi. Í B-deildinni vann KV öruggan sigur gegn Víkingi Ólafsvík.
Aron Daníel Arnalds kom KV í forystu á 15. mínútu og tveimur mínútum fyrir leikhlé gerði Gunnar Helgi Steindórsson annað mark Vesturbæinga.
Styrmir Máni Kárason gerði svo þriðja mark KV áður en flautað var til leiksloka. Þægilegt fyrir KV sem er með sex stig eftir þrjá leiki sína. Öll hin liðin í riðlinum eiga tvo leiki eftir og því óvíst hvernig hann endar.
Í C-deild mótsins vann Reynir Sandgerði sigur gegn Hvíta riddaranum í miklum markaleik. Það voru skoruð níu mörk í þeim leik og niðurstaðan 4-5 sigur Reynis.
Víkingur Ó. 0 - 3 KV
0-1 Aron Daníel Arnalds ('15)
0-2 Gunnar Helgi Steindórsson ('43)
0-3 Styrmir Máni Kárason ('84)
Hvíti riddarinn 4 - 5 Reynir S.
Athugasemdir