Danska Tipsbladet hefur opinberað úrvalslið 17. umferðar úrvalsdeildarinnar þar í landi og þar eigum við Íslendingar einn fulltrúa, Jón Dag Þorsteinsson.
Í umsögn blaðsins segir að Jón Dagur hafi verið um allan völl þegar AGF vann Sönderjyske um síðustu helgi.
Þetta er í þriðja sinn á tímabilinu sem blaðið velur Jón Dag í lið umferðarinnar.
AGF er í þriðja sæti dönsku úrvalsdeildarinnar, fimm stigum frá toppliði Bröndby.

Jón Dagur er fastamaður í liði AGF og hefur skorað fimm mörk á tímabilinu.
Athugasemdir