Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 23. mars 2020 10:59
Elvar Geir Magnússon
Þjálfari Fylkis með kórónaveiruna
Ólafur Ingi Stígsson.
Ólafur Ingi Stígsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Stígsson, þjálfari Fylkis, hefur greinst með COVID-19 veirusýkingu.

Ólafur hefur verið í einangrun í viku og ekki fundið mikil einkenni.

568 hafa greinst með kórónaveiruna á Íslandi.

Eins og lesendur vita þá liggur allt íþróttastarf á Íslandi niðri á meðan samkomubann er í gildi og engar skipulagðar æfingar hjá íþróttafélögunum.

Ekki er vitað hvenær Pepsi Max-deildin getur hafist en nú er miðað við miðjan maí.

Ólafur er annar af aðalþjálfurum karlaliðs Fylkis í Pepsi Max-deildinni, hann stýrir liðinu ásamt Atla Sveini Þórarinssyni.
Athugasemdir
banner