Fotbolti.net
23.04.22 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Willum valinn leikmaður mánaðarins hjá Bate

Willum valinn leikmaður mánaðarins hjá Bate
Canon

Mynd: BATE

Willum Þór Willumsson var hetja Bate í gær þegar liðið vann Gomel 2-1. Hann skoraði annað markið og lagði upp hitt.

Hann hefur fengið viðurkenningu hjá félaginu en hann var valinn leikmaður mánaðarins.

Liðið lék þrjá leiki í apríl og Willum skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Hitt markið kom í 3-0 sigri liðsins á Dnepr Mogilev. Bate er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar eftir 5 leiki.

Willum spilaði lítið á síðustu leiktíð sökum meiðsla en er að koma vægast sagt sterkur inn núna. Hann skoraði einnig eitt mark í mars mánuði.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.