Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. maí 2020 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu ansi slysalegt sjálfsmark Hinteregger gegn Bayern
Trapp skilur lítið í því sem gerðist.
Trapp skilur lítið í því sem gerðist.
Mynd: Getty Images
Bayern vann í dag 5-2 sigur á Frankfurt á Allianz Arena. Martin Hinteregger var allt í öllu í leiknum en hann hafði skorað bæði mörk Frankfurt áður en hann innsiglaði svo sigur heimamanna á 74. mínútu.

David Alaba átti frábæra sendingu á Serge Gnabry sem tók á móti boltanum og kom sér inn á vítateig gestanna. Kevin Trapp, markvörður Frankfurt, kom út á móti Gnabry sem kom boltanum þá til hliðar.

Thomas Muller var þar tilbúinn að koma boltanum í netið en Hinteregger var mættur og reyndi hann með mjög ófullnægjandi hætti að koma boltanum í burtu. Hann reyndi að koma boltanum frá sér með hægri fæti en ekki vildi betur til en að boltinn fór í vinstri fót hans og þaðan aftur í þann hægri og svo í netið. Klaufalegt í meira lagi.

Smelltu hér til að sjá markið.

Athugasemdir
banner
banner