Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. maí 2020 10:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Víðir fær Sigurberg lánaðan úr Keflavík (Staðfest)
Sigurbergur með Hólmari Erni, þjálfara Víðis.
Sigurbergur með Hólmari Erni, þjálfara Víðis.
Mynd: Víðir
Keflavík hefur lánað Sigurberg Bjarnason til nágranna sinna í Víði Garði út tímabilið sem er í vændum.

Sigurbergur, sem er 21 árs gamall, er búinn að vera stíga upp úr sínum öðrum krossbandsslitum og hefur verið stígandi i hans leik.

Sigurbergur var aðeins sextán ára þegar hann kom við sögu í sínum eina deildarleik með Keflavík sumarið 2015, en sá leikur var í Pepsi-deildinni. Hann hefur einnig leikið með Njarðvík og Vestra í meistaraflokki.

Hann ætlar sér að hjálpari Hólmari Erni og lærisveinum í Víði í sumar, en Víðir hafnaði á síðasta tímabili í fjórða sæti 2. deildar.


Athugasemdir
banner
banner