Aron Snær Ingason og Axel Óskar Andrésson skullu harkalega saman á 12. mínútu leiks Aftureldingar og Þróttar í gær. Þróttarar voru að vinna boltann og hann á leið til Arons þegar Axel ætlaði að stinga sér fram fyrir hann og vinna lausa boltann með höfðinu.
Þeir skullu harkalega saman og var Aron í miðjuhringnum í langan tíma en Axel stóð nokkuð fljótlega upp. Hvorugur gat haldið leik áfram og komu tveir sjúkrabílar inn á Malbikstöðina að Varmá og varð um stundarfjórðungs hlé á leiknum. Aron var fluttur á sjúkrahús en Axel gekk af velli.

Lestu um leikinn: Afturelding 4 - 3 Þróttur R.
Í samtali við Fótbolta.net segist Aron ekki muna eftir atburðarásinni og man í raun ekki eftir gærkvöldinu. „Ég veit eiginlega ekkert hvað gerðist, man ekki eftir því. Ég gisti á sjúkrahúsinu og ranka svo bara við mér í morgun. Þetta var heilahristingur og núna á ég bara að taka því rólega og sofa."
Sauma þurfti sex spor í höfuð Axels eftir að hann fékk skurð.
„Ég vissi ekkert hvað hefði gerst í augnablikinu, en ég er góður núna," segir Axel sem sér atvikið ekki sem árás á Aron eins og þjálfari Þróttar vildi meina. Axel á að hvíla í 3-4 daga og alveg ljóst að hvorugur þeirra spilar ekki í komandi umferð í Lengjudeildinni.