Velski landsliðsmaðurinn Gareth Bale verður laus allra mála hjá Real Madrid um mánaðamótin en hann heimsótti æfingasvæði Cardiff City í gær og ræddi þar við stjóra félagsins, en teymi hans hefur verið í viðræðum við félagið síðustu vikur.
Bale, sem verður 33 ára í næsta mánuði, er í leit að nýju félagi að minnsta kosti fram að HM í Katar, en það er orðrómur um að hann leggi skóna á hilluna um áramótin.
Leikmaðurinn heimsótti æfingasvæði Cardiff í gær og ræddi við Steve Morison, stjóra félagsins. Tilgangur heimsóknarinnar var þó að hitta læknateymi velska landsliðsins en hann nýtti ferðina til að spjalla við Morison.
Cardiff er eitt þeirra félaga sem Bale er að skoða en það er bara einn af mörgum möguleikum sem koma til greina hjá leikmanninum.
Samkvæmt Sky Sports ætlar Bale ekki að flýta sér að taka ákvörðun með framtíðina og gæti því sú ákvörðun dregist fram í ágúst.
Cardiff City hafnaði í 18. sæti ensku B-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir