Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 23. júní 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Hafnar Man Utd og gengur í raðir Palace
Malcolm Ebiowei
Malcolm Ebiowei
Mynd: Getty Images
Malcolm Ebiowei, leikmaður Derby County á Englandi, hefur ákveðið að ganga í raðir Crystal Palace í sumar.

Ebiowei er 18 ára gamall og spilar stöðu hægri kantmanns en hann lék 16 leiki með Derby í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð.

Derby féll niður í ensku C-deildina eftir erfitt tímabil og hefur hann ákveðið að reyna fyrir sér annars staðar þar sem samningur hans rennur út um mánaðamótin.

Manchester United og Crystal Palace buðu honum samning en hann ákvað að taka tilboði Palace með von um að fá meiri spiltíma hjá Lundúnarliðinu.

Hann gekkst undir læknisskoðun hjá Palace á dögunum og mun skrifa undir fimm ára samning við félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner