Callum Hudson-Odoi er nálægt því að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Chelsea sem mun færa honum 180 þúsund pund í vikulaun samkvæmt heimildum Sky Sports News. Talið er að með bónusum gæti þessi 18 ára kantmaður fengið um 200 þúsund pund í vikulaun.
Bayern Munchen hefur verið á höttunum á eftir Hudson-Odoi og buðu í hann í janúar og í sumar bauð þýska liðið 22,5 milljónir punda í kantmanninn unga. Núgildandi samningur Hudson-Odoi rennur út næsta sumar.

Viðræður hafa átt sér stað milli leikmannsins og félagsins undanfarið hálft ár og á síðustu tveimur sólarhringum hafa viðræður gengið það vel að leikmaðurinn er sagður nálægt því að skrifa undir.
Hudson-Odoi var í vor valinn besti ungi leikmaður Chelsea.
Athugasemdir