Brexit er að setja strik í reikninginn fyrir félagaskipti markvarðarins Cecilíu Ránar Rúnarsdóttur til enska úrvalsdeildarfélagsins Everton.
Cecilía, sem er 17 ára, gekk í raðir sænska úrvalsdeildarfélagsins Örebro í mars síðastliðnum. Talað var um að hún myndi fara til Everton þegar hún yrði 18 ára gömul.
Hún verður 18 ára í þessum mánuði, nánar tiltekið á mánudaginn næsta.
Goal segir hins vegar að það sé ákveðið flækjustig búið að myndast í skiptum hennar til Everton vegna Brexit, útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.
Bretar gengu formlega úr Evrópusambandinu þann 31. janúar síðastliðinn, en nýjar reglur í enska boltanum hafa núna tekið gildi. Það er sérstakt kerfi sem sér til þess að ákveða um hvort leikmenn fái atvinnuleyfi eða ekki, en það fer meðal annars eftir því hversu marga landsleiki umræddur leikmaður hefur leikið, hversu sterkt félagið sem er að selja leikmanninn er og hversu sterk deildin sem leikmaðurinn kemur úr er.
Cecilía er ekki búin að safna nægilega mörgum stigum til að fá atvinnuleyfi á Englandi. Það er búist við því að hún skrifi undir hjá Everton formlega á mánudaginn, en þá verði það þannig að hún komi ekki til liðsins fyrr en í janúar í fyrsta lagi. Hún verði áfram í Örebro.
Cecilía er gríðarlega efnileg og hefur staðið sig vel með Örebro þegar hún hefur fengið tækifæri.
Fram kemur á Goal að West Ham, Sassuolo og Benfica hafi líka haft áhuga á Cecilíu. Hún samdi við Everton, en þar eru margir ungir og spennandi leikmenn búnar að skrifa undir upp á síðkastið. Það er spennandi verkefni í gangi þar.
Athugasemdir