Steven Gerrard segir að það hafi ekki komið sér á óvart að Rafa Benítez hafi tekið við Everton, þrátt fyrir að hann sé fyrrum stjóri Liverpool.
Gerrard er fyrrum fyrirliði Liverpool og spilaði undir stjórn Benítez. Í dag er hann stjóri Rangers í Glasgow.
Gerrard segir að það hafi komið sér mest á óvart að hann var einn af þeim sem var orðaður við Everton starfið.

„Rafa fæddist ekki í borginni svo hann er ekki rauður út í gegn. Þetta er allt öðruvísi staða en hjá mér. Rafa er tekur sínar sjálfstæðu ákvarðanir og það kemur ekki á óvart að hann vildi komast aftur í þjálfun í úrvalsdeildinni," segir Gerrard.
„Þetta kom mér ekki á óvart á neinn hátt. Það var samt áfall og kom á óvart að ég hafi verið orðaður við starfið. Ég veit ekki hvaðan það kom. Það er aldrei möguleiki á því að ég muni verða stjóri Everton."
Steven Gerrard on why he can never manage Everton and what he thinks of Rafa Benitez taking charge at Goodison Park.. pic.twitter.com/X0GgqehDKP
— Mark Ogden (@MarkOgden_) July 23, 2021
Athugasemdir