23.07.26 - 13:08
Elvar Geir Magnússon
Mótherjar Stjörnunnar með besta merki fótboltans?

Gaupan tekur sig vel út á treyjunni.

Mynd: EPA

Kötturinn Keli og Ásta.

Mynd: Stundin okkar

Gaupan tekur sig vel út á treyjunni.

Mynd: EPA
Stjarnan tekur á móti Ilves frá Tampere í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld en Ilves hafnaði í þriðja sæti finnsku deildarinnar á síðasta tímabili.
Merki þessa finnska félags hefur vakið mikla athygli en það er sérstakt svo vægt sé til orða tekið. Það var listamaðurinn Rauno Broms sem teiknaði merkið 1962 og það hefur verið notað síðan.
Það er andlit af gaupu en Tampere-svæðið í Finnlandi er eitt af heimkynnum þessara kattardýra. Ilves er einmitt þýska orðið yfir gaupu. Gaupur eru sterklega byggð kattardýr sem vega venjulega á milli 5-30 kíló.
Félagið ákvað að heiðra þetta tignarlega dýr í hönnun merkisins og það hefur vakið athygli fótboltaunnenda um allan heim eins og sjá má á samfélagsmiðlum. Talað er um það sem 'svalasta' merki fótboltans og einnig það 'besta'. Sitt sýnist hverjum.
Á skrifstofu Fótbolta.net kom upp umræða um að merkið minnti á köttinn Kela sem gerði garðinn frægan á sínum tíma með Ástu í Stundinni okkar. Ekki leiðum að líkjast en Keli var hinsvegar sagður norskur skógarköttur en ekki gaupa.
Leikur Stjörnunnar og Ilves hefst klukkan 19 í kvöld og verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Ilves
Þróun merkisins:
@thefootballsearch Ilves Tampere has the coolest logo in football?? #europaleague ? original sound - footballsearch
@aaronchalloner ???? The BEST Football Badge in the WORLD! @Ilves Football #ilves #ilvesfc #ilvesfc #ilvesfootball #finland #finnish #veikkausliiga #football #soccer #europe #european #europeanfootball #history #badge #footballbadge #soccerbadge #uefa #uefachampionsleague #uefaeuropaleague #analysis #sport #sports ? original sound - Chall

Kötturinn Keli og Ásta.

Mynd: Stundin okkar