Fotbolti.net
23.07.26 - 13:32
Kári Snorrason

Norðmenn ætla að leggja fram formlega kvörtun til FIFA

Norðmenn taka upp

Norðmenn taka upp

Canon

Mynd: EPA

Forseti norska fótboltasambandsins hyggst leggja fram formlega kvörtun til FIFA vegna ákvörðunar sambandsins um afléttun á leikbanni Folarin Balogun, leikmanni Bandaríkjanna.

Eins og flestum er kunnugt þá fékk Balogun rautt spjald gegn Bosníu og Hersegóvínu í 32-liða úrslitum HM og hefði þar af leiðandi átt að vera í banni gegn Belgíu í 16-liða úrslitum.
Trump lét afturkalla leikbannið
TENGT EFNI

Trump lét afturkalla leikbannið

Eftir símtal við Donald Trump Bandaríkjaforseta setti Gianni Infantino, forseti FIFA, ákveðna nefnd til að fara yfir rauða spjaldið sem komst að þeirri niðurstöðu að aflétta leikbanninu.

Lise Klaveness, forseti norska fótboltasambandsins, segir það ekki eiga að geta gerst að Bandaríkjaforseti geti komið að málinu. Hún segir FIFA á hálum ís.

Klaveness hefur áður gagnrýnt FIFA fyrir að hafa gefið Trump friðarverðlaun sambandsins. Ef hún fær stuðning stjórnar ætlar Klaveness að bæta Balogun-málinu við kvörtun sína vegna friðarverðlaunanna.

Ef allt gengur eftir fer málið til óháðrar siðanefndar FIFA til að rannsaka hugsanleg brot.
Infantino og Klaveness í stúkunni saman.

Infantino og Klaveness í stúkunni saman.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.