23.08.18 - 18:57
Ívan Guðjón Baldursson
Jack Rodwell skrifar undir hjá Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jack Rodwell mun leika með Blackburn Rovers í ensku Championship deildinni. Miðjumaðurinn var samningslaus og kemur því frítt.
Rodwell er 27 ára gamall og fór á reynslu til Watford fyrr í sumar. Hann þótti eitt mesta efni enskrar knattspyrnu á sínum tíma þegar hann kom upp gegnum unglingastarf Everton.
Hann var keyptur til Manchester City fyrir 12 milljónir punda árið 2012 en lenti í erfiðum meiðslum og náði sér aldrei á strik aftur.
Undanfarin fjögur ár hefur Rodwell verið mikilvægur hlekkur í liði Sunderland, þegar hann er ekki meiddur, en liðið er búið að falla úr úrvalsdeildinni og alla leið niður í C-deildina á tveimur árum.
Blackburn er enn taplaust eftir fjórar fyrstu umferðirnar og situr í níunda sæti, með sex stig.