Fotbolti.net
23.08.18 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Mo Besic til Middlesbrough á láni (Staðfest)

Mættur til Boro.

Mættur til Boro.

Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hefur fengið miðjumanninn Mo Besic í sínar raðir á láni frá Everton.
Besic var á láni hjá Boro síðari hlutann á síðasta tímabili og þekkir því til hjá félaginu.

Besic var nálægt því að ganga í raðir Boro á sex milljónir punda fyrr í mánuðinum en þá náðust ekki samningar við umboðsmann hans.

Félög í Championship deildinni geta ennþá fengið leikmenn á láni og Tony Pulis, stjóri Boro, náði að landa Besic á láni fyrir toppbaráttuna sem er framundan.

Pulis var einnig að reyna að fá kantmanninn Yannick Bolasie frá Everton en hann virðist ætla að enda hjá Aston Villa á láni.

#MoBackThursday #UTB pic.twitter.com/RqvAuElRPe

— Middlesbrough FC (@Boro) August 23, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.