Fotbolti.net
23.08.18 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson

Tomas Kalas til Bristol (Staðfest)

Tomas Kalas til Bristol (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bristol City er búið að staðfesta komu Tomas Kalas til félagsins á lánssamning út tímabilið.
Kalas er 25 ára Tékki sem getur bæði leikið sem miðvörður og hægri bakvörður.

Kalas hefur mikla reynslu úr toppbaráttu Championship deildarinnar eftir að hafa spilað yfir 100 leiki fyrir Middlesbrough og Fulham undanfarin þrjú ár.

Bæði Middlesbrough og Fulham vildu fá Kalas í sumar en Bristol hafði betur og er Lee Johnson, stjóri Bristol, hæstánægður með að hafa krækt í sinn mann.

„Við erum stoltir af því að tryggja okkur Kalas á lánssamning út tímabilið. Það voru mörg lið á eftir honum, sterk lið úr Championship deildinni og stór evrópsk félög, en við unnum kapphlaupið,\" sagði Johnson.

„Þessi félagaskipti voru möguleg þökk sé sterkum tengslum okkar við Chelsea, þaðan sem við höfum fengið menn á borð við Tammy Abrahm og Jay Dasilva undanfarin ár.\"

Hörður Björgvin Magnússon var á mála hjá Bristol City í tvö ár og lék yfir 60 leiki fyrir félagið. Hann var seldur til CSKA Moskvu í sumar.

Bristol fór ekki vel af stað í Championship deildinni í ár og fékk aðeins tvö stig úr fyrstu þremur deildarleikjunum. Fyrsti sigur liðsins kom um helgina, 3-0 á útivelli gegn QPR.

Bristol er með fimm stig eftir fjórar umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.