Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 23. ágúst 2019 15:15
Magnús Már Einarsson
Hólmfríður best í umferðum 7-12 - Fékk heyrnatól
watermark Hólmfríður Magnúsdóttir með verðlaunin.
Hólmfríður Magnúsdóttir með verðlaunin.
Mynd: Origo
Hólmfríður Magnúsdóttir, leikmaður Selfoss hefur verið valinn besti leikmaður annars þriðjungs Pepsi Max-deildar kvenna í kosningu hér á Fótbolta.net.

Það er Origo sem verðlaunar leikmann hvers þriðjungs í Pepsi Max-deildum karla og kvenna í sumar. Lesendur Fótbolta.net fengu að velja milli fjögurra tilnefndra leikmanna og Hólmfríður fékk 40% atkvæða.

Hún fékk í verðlaun Sony bluetooth heyrnartól 1000XM3 með noise cancel frá Origo.

Valið er í samvinnu við Heimavöllinnn en sérfræðingar þáttarins tilnefndu fjóra leikmenn. Það voru þær: Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfoss), Hlín Eiríksdóttir (Valur), Margrét Lára Viðarsdóttir (Valur) og Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)


Athugasemdir
banner