23.08.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum leikmaður West Brom lést 25 ára gamall

Quevin Castro.

Mynd: West Brom

Quevin Castro.

Mynd: West Brom
Quevin Castro, fyrrverandi leikmaður West Bromwich Albion, lést í gærmorgun, aðeins 25 ára að aldri, eftir að hann hneig niður á vellinum í leik í Portúgal. Castro lék með Real Massama gegn Estrela de Amadora og hafði aðeins verið inni á vellinum í um tíu mínútur þegar hann féll skyndilega til jarðar.
Læknateymi beggja liða hlupu inn á völlinn til að veita Castro aðstoð og samkvæmt portúgalska miðlinum A Bola var hjartastuðtæki notað. Tilraunir til að endurlífga hann báru hins vegar ekki árangur. Castro var fluttur á sjúkrahús en var úrskurðaður látinn þar.
Estrela de Amadora sendi frá sér tilkynningu þar sem félagið vottaði fjölskyldu og vinum Castro, sem og öllum hjá Real Massama, sína dýpstu samúð.
Castro var uppalinn hjá Sporting Lissabon og samdi við Thetford Town árið 2017. Hann lék síðar með Mildenhall Town, Leiston, Bury Town og Norwich CBS áður en hann gekk til liðs við West Bromwich Albion árið 2021.
Castro lék þrjá leiki fyrir aðallið West Bromwich Albion á sínum tíma hjá félaginu. Hann yfirgaf félagið árið 2023 og hélt þá til York City. Hann lék síðar með Cambridge City og Eastbourne áður en hann gekk til liðs við Real Massama.