Fotbolti.net
23.08.26 - 17:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Neitaði Ollie Watkins að spila?

Ollie Watkins.

Ollie Watkins.

Canon

Mynd: EPA

Ollie Watkins var ekki í leikmannahópi Aston Villa í 4-0 tapinu gegn Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Watkins hefur verið orðaður við Al-Hilal í Sádi-Arabíu en Aston Villa hefur hingað til ekki samþykkt tilboð í leikmanninn.
Unai Emery, stjóri Aston Villa, gaf skrítin svör fyrir leikinn varðandi Watkins og var svo spurður eftir leikinn hvort sóknarmaðurinn hefði neitað að spila.

„Spurningin er fyrir hann. Ég get bara svarað með þögn minni. Ég get ekki útskýrt, hann getur það."

Watkins hefur spilað með Aston Villa frá 2020 og er markahæsti leikmaður í sögu liðsins í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.